Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í gær að lagt verði fyrir Alþingi frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, um að aðlögunarheimildir aðildarsamnings EES frá 2007 um aðgengi ríkisborgara Búlgaríu og Rúmeníu að íslenskum vinnumarkaði verði áfram nýttar fram til 1. janúar 2012.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu.

Þar segir að frumvarpið sé lagt fram í ljósi þeirrar óvissu sem ríki um stöðu og þróun á innlendum vinnumarkaði á næstu mánuðum vegna þrenginga í efnahagslífi þjóðarinnar.

„Atvinnuleysi hefur aukist hratt undanfarnar vikur og mældist 1,9% í október 2008. Miðað við skráningu fólks á atvinnuleysisskrá Vinnumálastofnunar, fyrstu daga nóvembermánuðar má gera ráð fyrir að atvinnuleysi verði 4,4% um mánaðarmótin nóvember og desember 2008 og verði nálægt 8% um mánaðarmótin janúar og febrúar 2009. Aðstæður hafa því breyst mjög hratt á innlendum vinnumarkaði og erfitt að meta hversu langt er að bíða þess að atvinnuhorfur batni á nýjan leik. Þótti því ástæða til að grípa til þessara aðgerða.“

Búlgarar og Rúmenar sem vilja koma hingað til lands til starfa þurfi því áfram að sækja um tímabundin dvalar- og atvinnuleyfi samkvæmt lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga á sama hátt og áður. Launamenn frá þessum ríkjum eigi þó ákveðinn forgang umfram ríkisborgara ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins að því er varðar aðgengi að íslenskum vinnumarkaði á tímabilinu til 1. janúar 2012, segir í tilkynningu ráðuneytisins.