Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að kanna til þrautar möguleika á að leita réttar Íslendinga fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu vegna beitingar breskra stjórnvalda á svonefndum hryðjuverkalögum (Anti Terrorism, Crime and Security Act) frá árinu 2001 gegn Landsbankanum á síðasta ári.

Þá hefur ríkisstjórnin, eftir ráðgjöf breskra lögmanna, ákveðið að höfða ekki mál gegn breskum yfirvöldum fyrir breskum dómsstólum þar sem talið er að litlar sem engar líkur eru því að íslensk stjórnvöld gætu hnekkt ákvörðun breskra stjórnvalda.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Þar ítrekar ríkisstjórnin jafnframt fyrri yfirlýsingar um að styðja af alefli við málsókn skilanefndar Kaupþings vegna framgöngu breska Fjármálaeftirlitsins gegn Singer & Friedlander. Skilanefndin hefur afráðið að höfða, fyrir hönd bankans, mál gegn breskum stjórnvöldum og nýtur því fulls stuðnings ríkisstjórnarinnar í þeirri málsókn.

„Stuðningurinn er í samræmi við lög frá Alþingi sem samþykkt voru 20. desember en þau heimila fjármálaráðherra að styðja fjárhagslega við slíka málsókn,“ segir í tilkynningunni.

Þá mun ríkisstjórnin einnig, líkt og fram kom í gær, styðja við málsókn skilanefndar Landsbankans í hugsanlegum málaferlum gegn breskum stjórnvöldum, en sérstök athygli er vakin á að sú málshöfðun lýtur ekki að öllu leyti sömu tímafrestum og málshöfðun skilanefndar Kaupþings.

Litlar líkur taldar á sigri í breskum dómsstólum

Í tilkynningunni kemur fram að ríkisstjórnin hefur fengið álit frá bresku lögmannsstofunni Lovells um hugsanlega málshöfðun íslenska ríkisins gegn breskum stjórnvöldum í þeim tilgangi að láta reyna á lögmæti kyrrsetningar eigna Landsbankans með stjórnvaldsákvörðun þeirra frá 8. október 2008 (Landsbanki Freezing Order) á grundvelli hryðjuverkalaganna.

Voru bresku lögmennirnir fengnir til að leggja mat á hvort hægt væri að hnekkja kyrrsetningunni fyrir breskum dómstólum á grundvelli sjónarmiða um ólögmæti og hvort íslenska ríkið gæti höfðað skaðabótamál fyrir breskum dómstólum vegna kyrrsetningarinnar.

„Lögmennirnir töldu að litlar sem engar líkur væru á því að íslensk stjórnvöld gætu hnekkt kyrrsetningunni fyrir breskum dómstólum,“ segir í tilkynningunni.

„Rökstuddu þeir niðurstöðuna ítarlega með tilliti til breskra lagasjónarmiða og dómafordæma og töldu að lagaákvæðin veittu breskum stjórnvöldum afar rúmar heimildir til þess að beita kyrrsetningarákvæðum. Þá voru þeir þeirrar skoðunar að engar líkur væru á því að íslenska ríkið myndi fá dæmdar skaðabætur fyrir breskum dómstólum vegna kyrrsetningarinnar. Ríkislögmaður og þjóðréttarsérfræðingur utanríkisráðuneytisins voru sammála þessu áliti.“

Þá kemur fram að á grundvelli þessa hefur ríkisstjórnin ákveðið að höfða ekki mál gegn breskum stjórnvöldum fyrir breskum dómstólum á þessu stigi. Eins og fyrr segir mun hún hins vegar kanna aðra möguleika til alþjóðlegrar málsóknar til þrautar og má þar sérstaklega nefna Mannréttindadómstól Evrópu.

Sjá tilkynningu forsætisráðuneytisins.