Ríkiskaup hafa gert samkomulag um sölu lausamuna ríkisstofnana á Bland.is. Fram kemur á vef Ríkiskaupa að þetta sé tímamótasamningur og sé um tilraunaverkefni að ræða sem eigi að auðvelda ríkisstofnunum að selja húsbúnað, tölvubúnað, skrifstofutæki og aðra lausamuni.

Samkomulagið er gert til reynslu og gildir til eins árs eða út maí á næsta ári.

Á vef Ríkiskaupa eru leiðbeiningar um það hvernig starfsmenn ríkisstofnana geta selt lausamuni á Bland.is