Útboð á ríkisvíxlum í tveimur flokkum fór fram klukkan 11 í dag. Alls bárust sex gild tilboð í flokkinn RIKV 13 0515 að fjárhæð 4,9 milljarðar króna að nafnvirði, að því er kemur fram í tilkynningu frá Lánamálum ríkisins.

Tilboðum var tekið fyrir fjóra milljarða á verðinu 99,24, sem þýðir að flatir vextir eru 3,1%. Þá bárust tíu gild tilboð í flokkinn RIKV 13 0815 að fjárhæð 2.885 milljónir króna. Tilboðum var tekið fyrir 1.385 milljónir á verðinu 98,368, sem þýðir að flatir vextir á víxlinum eru 3,3%.

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti.