Rio Tinto Group
Rio Tinto Group
Hagnaður Rio Tinto Group, annars stærsta námufyrirtækis heims, nam 7,6 milljörðum dollara á fyrstu sex mánuðum ársins. Hagnaðurinn jókst um 1,8 milljarða dollara frá sama tímabil árið 2010. Hagnaður var undir væntingum sérfræðinga sem höfðu spáð 8,3 milljörðum dollara hagnaði á tímabilinu.

Eftir að uppgjörið var birta hefur hlutabréfaverð Rio Tinto Group í London fallið 2,7% í 3.906,5 pens sem er lægsta verð frá því 16.mars af því er fram kemur í frétt Bloomberg.