Rio Tinto lagði í dag fram formlega kvörtun til Samkeppniseftirlitsins vegna misnotkunar Landsvirkjunar á yfirburðastöðu fyrirtækisins gagnvart ISAL. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.

„Rio Tinto fer fram á við Samkeppniseftirlitið að það taki á samkeppnishamlandi háttsemi Landsvirkjunar með mismunandi verðlagningu og langtímaorkusamningum, svo að álver ISAL og önnur íslensk framleiðsla og fyrirtæki geti keppt á alþjóðavettvangi," segir í tilkynningunni.

Alf Barrios, forstjóri Rio Tinto Aluminium, segir: „Það þarf að taka á misnotkun Landsvirkjunar á markaðsráðandi stöðu sinni á íslenskum orkumarkaði. Af öðrum kosti á Ísland á hættu að glata stórum útflutningsfyrirtækjum á borð við ISAL í Straumsvík. ISAL greiðir umtalsvert meira fyrir orku sína en aðrir álframleiðendur á Íslandi sem grefur undan samkeppnisstöðu fyrirtækisins. Við getum ekki haldið áfram að framleiða ál á Íslandi sé verðlagning orkunnar ekki gagnsæ, sanngjörn og alþjóðlega samkeppnishæf. Í millitíðinni munu teymi okkar hjá ISAL halda áfram að einbeita sér að því að draga úr kostnaði á öruggan hátt, bæta framleiðni og standa við skuldbindingar okkar gagnvart viðskiptavinum.“

Að mati Rio Tinto fela mismunandi verð í raforkusamningum Landsvirkjunar í sér mismunun gagnvart viðskiptavinum, fyrirtækið misnoti þannig markaðsráðandi stöðu sína sem sé óréttlætanleg háttsemi. Samningar Landsvirkjunar binda viðskiptavini til langs tíma og hindra önnur orkufyrirtæki annað hvort í að koma inn á íslenskan markað eða auka starfsemi.

Undanfarið hefur Rio Tinto verið í viðræðum við Landsvirkjun til að tryggja sjálfbæra framtíð álversins og þeirra 500 starfa sem þar eru í húfi. Þrátt fyrir ítrekaða viðleitni af hálfu Rio Tinto til að koma á uppbyggilegu samtali hefur fyrirtækið nú komist að þeirri niðurstöðu að Landsvirkjun sé ekki tilbúin til að bæta núverandi raforkusamning ISAL sem gerir fyrirtækið sjálfbært og samkeppnishæft og taka á skaðlegri hegðun og mismunun Landsvirkjunar gagnvart ISAL.

Þann 12. febrúar tilkynnti Rio Tinto um sérstaka endurskoðun á starfsemi álvers ISAL í Straumsvík. Rio Tinto hefur lokið fyrsta áfanga stefnumótandi endurskoðunar með kvörtun til Samkeppniseftirlitsins. Láti Landsvirkjun ekki af skaðlegri háttsemi sinni, hefur ISAL ekki annan kost en að íhuga að segja upp orkusamningi sínum við Landsvirkjun og virkja áætlun um lokun álversins.