Þrír hópar fjárfesta hafa fest kaup á 50,5% hlut í Icelandair Group. Hóparnir eru: Langflug ehf (að mestu í eigu Samvinnutrygginga hf.) með 32% hlut, Naust ehf (að mestu í eigu BNT hf.) með 11,1% hlut og Blue-Sky Transport Holding (að mestu í eigu Ómars Benediktssonar) með 7,4% hlut.

Glitnir hefur til viðbótar ráðstafað til fjárfesta og starfsfólks Icelandair Group allt að 16% hlut, þannig að alls hefur um 67% hlutafjár félagsins verið ráðstafað.

Í tengslum við fyrirhugaða skráningu Icelandair Group á hlutafjármarkað mun fara fram almennt hlutafjárútboð, þar sem fagfjárfestum annarsvegar og almenningi hinsvegar gefst kostur á að skrá sig fyrir hlut í Icelandair Group. Stefnt er að sölu á allt að þriðjungi hlutafjár með þessum hætti. Fyrirkomulag útboðsins verður kynnt síðar.

Hannes Smárason, forstjóri FL Group, segir eftirfarandi í tilkynningu félagsins. ?Hinn mikli áhugi fjárfesta á Icelandair Group gerði FL Group kleift að selja allan hlut sinn í félaginu, enda staða þess sterk og rekstur góður. Þessi viðskipti marka viss tímamót fyrir FL Group og styðja vel við áætlanir félagsins um frekari fjárfestingar, ásamt því að auka enn þann sveigjanleika sem þegar býr í því. Við höfum lagt ríka áherslu á að Icelandair Group komist í almenningseigu, enda um að ræða mikilvægasta samgöngufyrirtæki landsins. Þá er mikilvægt að félagið verði áfram leiðandi fyrirtæki í alþjóða flugrekstri og það haldi því forystuhlutverki sem það hefur í innlendri ferðaþjónustu."

Jón Diðrik Jónsson, framkvæmdastjóri hjá Glitni, segir í sömu tilkynningu: ?Við lýstum því yfir þegar við gengum frá samkomulagi við FL Group um skráningu Icelandair Group, að við teldum áhuga fjárfesta á félaginu mikinn og það hefur komið á daginn. Við höfum þegar gengið frá sölu á þeim hlut sem Glitnir sölutryggði fyrir tæpum tveimur vikum. Því til viðbótar hefur Glitnir ráðstafað um 16% til annarra fjárfesta og starfsfólks Icelandair Group þannig að nú hefur 67% hlutafjár í félaginu verið ráðstafað. Þetta er í takt við þær væntingar sem við höfðum til þessa verkefnis."

?Stjórnendur Icelandair Group styðja áætlanir um skráningu á markað heilshugar og fagna því tækifæri sem það veitir. Áform eru uppi um að stjórnendur komi að kaupum á allt að 4% hlut sem sýnir okkar hug og tiltrú á félaginu. Markmið með skráningu er að fá að félaginu breiðan hóp fagfjárfesta og einstaklinga og efla þannig tengsl þessa mikilvæga fyrirtækis við almenning í landinu. Ég er afar ánægður með að í samkomulagi FL Group og Glitnis felist, að allir starfsmenn Icelandair Group muni fá tækifæri til að kaupa hlut í félaginu," segir Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair Group.