Þrír nýir starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsinu í Reykjavík. Það eru þau Karitas Kjartansdóttir, sem verður verkefnastjóri, Páll S. Ragnarsson sem er tæknistjóri ljósabúnaðar og Ingvar Jónsson tæknistjóra hljóðstjórnar.

Karitas Kjartansdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri ráðstefnuhalds hjá  Hörpu.

Hún starfaði áður sem viðskiptastjóri í eignastýringu hjá VBS fjárfestingarbanka og þar á undan sem sölustjóri ráðstefnu- og hvataferða hjá Icelandair hotels.

Karitas er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og MBA frá Háskólanum í Reykjavík.

Páll S. Ragnarsson hefur verið ráðinn tæknistjóri  ljósabúnaðar  Hörpu

Undanfarið hefur hann starfað sem ljósameistari og – hönnuður hjá Íslensku óperunni og þar áður sem ljósameistari hjá Þjóðleikhúsinu um margra ára skeið.  Samtals hefur Páll starfað í yfir þrjátíu ár við ljósahönnun og ljósabúnað.

Páll er með meistarapróf í rafvirkjun.

Ingvar Jónsson hefur verið ráðinn tæknistjóri hljóðstjórnar hjá Hörpu.

Hann starfaði áður við hönnun og ráðgjöf hjá verkfræðistofunni Verkís og þar áður hjá Exton ehf. um margra ára skeið.  Að auki hefur Ingvar verið sjálfstætt starfandi hljóðmaður í mörg ár.

Ingvar er með B.Sc. gráðu í tæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík og er nú í meistaranámi í hljóðverkfræði við Álaborgarháskóla.