Þrír einstaklingar hafa sent inn skriflegt erindi til kjörstjórnar VR og þannig gefið kost á sér í formannsembætti stéttafélagsins.

Ásamt núverandi formanni, Gunnari Páli Pálssyni eru það þeir Lúðvík Lúðvíksson og Kristinn Örn Jóhannsson.

Frestur til að bjóða sig fram til formanns VR rann út á hádegi í dag.