Þrír stærstu lífeyrissjóðir landsins hafa fært skuldabréf útgefin af fyrirtækjum og fjármálastofnunum niður um 86 milljarða króna frá því í bankahruninu. Stærsti lífeyrissjóður landsins, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), hefur fært slík bréf niður um tæplega 54%, Lífeyrissjóður Verslunarmanna (LV) um 50,4% og Gildi lífeyrissjóður hefur fært um 66% þeirra á afskriftarreikning. Þetta kemur fram í uppgjörsgögnum frá sjóðunum þremur og upplýsingum frá stjórnendum þeirra. Sjóðirnir þrír halda samanlagt á um helming eigna íslenska lífeyrissjóðakerfisins.

37 milljarða afskriftir hjá LSR

LSR hefur fært tæplega 54% af heildarvirði skuldabréfa sjóðsins á fyrirtæki og fjármálastofnanir verið fært á afskriftarreikning. Í níu mánaða uppgjöri Lífeyrissjóðs Verslunarmanna  kemur fram að skuldabréf í eigu sjóðsins útgefin af fjármálastofnunum og fyrirtækjum hafi verið færð niður um 22 milljarða króna. Það þýðir að skuldabréfin hafa verið tekin niður um 50,4%. Í ársskýrslu Gildis segir að samtals hafi verið gjaldfærðar um 23 milljarðar króna „vegna áætlaðra tapa á skuldabréfum fyrirtækja og fjármálastofnanna þessi tvö ár.“ Sjóðurinn hefur því fært niður virði þessara skuldabréfa um tæp 66%.

_____________________________

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum og þeir sem ekki hafa lykilorð geta sótt um það hér .