Marel hefur styrkt Rauða krossinn um eina milljón evra, eða um 162 milljónir íslenskra króna, sem nýttar verða í að auka fæðuöryggi viðkvæmra samfélaga í Suður Súdan.

Í tilkynningu Marel um styrkinn kemur fram að Suður Súdan sé eitt af fátækustu ríkjum heims, en þar búi yfir 11 milljónir manna og um helmingur íbúa landsins búi við alvarlegan matvælaskort.

Með fjárstuðningi Marel muni hundruð þúsunda einstaklinga í Suður Súdan fá aðstoð með það að markmiði að verða sjálfbær um fæðu, að því er fram kemur í tilkynningunni. Í því felist meðal annars að fjárfesta í fræjum og tækjum til þess að rækta jarðveg en einnig veiðafærum til að auka fjölbreytni í fæðuvali og bólusetningum til að auka heilbrigði búpenings.

„Framtíðarsýn og tilgangur Marel er skýr. Við viljum stuðla að því að hágæða matvæli séu framleidd á sjálfbæran og hagkvæman hátt," segir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel í tilkynningunni. „Því miður hafa ekki allir aðgang að mat eða öðrum grundvallar nauðsynjum og við viljum leggja okkar lóð á vogarskálarnar til að auka matvælaöryggi á heimsvísu.

Samstarf okkar við Rauða krossinn er í samræmi við stefnu okkar um samfélagslega ábyrgð sem og áherslu okkar á framlag til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Samstarf okkar við Rauða krossinn styður sérstaklega við tvö af heimsmarkmiðunum; ekkert hungur og alþjóðlega samvinnu um sjálfbæra þróun."

"Við erum þakklát fyrir að geta lagt okkar af mörkum og stuðlað að sjálfbærri þróun og betri lífskjörum. „Við vitum að á þeirri vegferð skiptir hver máltíð máli og hvert framlag telur," segir Árni Oddur.

Ástandið aldrei verið alvarlegra

Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) hefur sinnt umfangsmiklu mannúðarstarfi á því landsvæði sem nú telur Suður Súdan í yfir 40 ár, frá því áður en Suður Súdan varð sjálfstætt ríki og stutt við landsfélag Rauða krossins í Suður Súdan.

Í tilkynningunni kemur fram að undanfarin ár hafi ástandið í Suður Súdan versnað. Til viðbótar við átök hafi loftslagsbreytingar áhrif í landinu, en mikil flóð á þessu og síðasta ári hafa valdið uppskerubresti og minnkandi landbúnaðarframleiðslu. Stríðsátök hafa gert það að verkum að mjög erfitt hefur reynst að dreifa matvælum til þeirra sem þurfa á að halda.

Á þessu ári hefur svo heimsfaraldurinn bæst við og sett strik í reikninginn, til viðbótar við mikla verðbólgu sem hefur skilað sér í mjög háu verðlagi matvæla í landinu. Ástandið í Suður Súdan hefur aldrei verið eins alvarlegt og þörfin á aðstoð því aldrei verið eins brýn og nú.

„Stuðningur Marel við verkefni Rauða krossins er ómetanlegur. Þetta gerir okkur kleift að styðja hundruðir þúsunda fjölskyldna sem annars myndu búa við mikinn fæðuskort auk alvarlegra afleiðinga vopnaðra átaka. Heimsfaraldur COVID-19 hefur veikt til mikilla muna stöðu viðkvæmra samfélaga sem á aðstoð þurfa að halda þegar athygli heimsins beinist að afleiðingum faraldursins en önnur vandamál eru enn til staðar. Fæðuóöryggi og skortur er alvarlegt mál og við erum þakklát Marel sem er í fararbroddi fyrirtækja sem sýna samfélagslega ábyrgð í verki," segir Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða Krossins, í tilkynningunni.