Jónas Haraldsson hefur látið af störfum ritstjóra Viðskiptablaðsins. Jónas hefur starfað á Viðskiptablaðinu um árabil, fyrst sem fréttastjóri, þá aðstoðarritstjóri og nú síðasta árið sem ritstjóri. Jónas á að baki langa og farsæla reynslu í blaðamennsku sem hann hefur miðlað örlátlega til samferðamanna á Viðskiptablaðinu. Má fullyrða að reynsla hans og innsæi hafi verið Viðskiptablaðinu drjúg stoð í því uppbyggingarstarfi sem staðið hefur yfir í hans ritstjóratíð.

Framtíðarsýn hf., útgáfufélag Viðskiptablaðsins, vill við þessi tímamót þakka Jónasi mikilvægt framlag hans. Þetta á ekki síst við, eins og áður segir, það mikla breytingaskeið sem staðið hefur yfir frá því að Viðskiptablaðinu var breytt í dagblað í febrúar í fyrra.

Haraldur Flosi Tryggvason framkvæmdastjóri