Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur borist þrjú skuldbindandi tilboð í nýtt hlutafé Árvakurs hf., útgáfufélag Morgunblaðsins.

Tilboðin voru opnuð í dag kl.14.00 í viðurvist Margretar Flóvenz, löggilts endurskoðenda frá KPMG, sem var tilnefnd sem óháður matsaðili og samþykktur af öllum bjóðendum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka en fyrirtækjaráðgjöf bankans mun á næstu dögum vinna úr tveimur hæstu tilboðunum, skoða forsendur og skilyrði og tilkynna um hæstbjóðenda í næstu viku.

Almenningshlutafélagið skilaði inn tilboði

Á meðal þeirra sem skiluðu inn tilboði var undirbúningshópur Almenningshlutafélags um Morgunblaðið sem Vilhjálmur Bjarnason, dósent hefur farið fyrir.

Er það mat hópsins að um sé að ræða fyllilega sanngjarnt tilboð fyrir hluthafa félagsins, kröfuhafa, starfsmenn og ekki síst lesendur Morgunblaðsins og Mbl.is.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá hópnum sem segist vera afar bjartsýnn á að tilboðinu verði vel tekið.

„Verði Almenningshlutafélag um Morgunblaðið fyrir valinu í þessum lokahnykk útboðs Íslandsbanka er ljóst að markmið um raunverulega dreifða eignaraðild Morgunblaðsins og mbl.is mun nást,“ segir í tilkynningunni.

„Þá er jafnframt tryggt að þessir rótgrónu fjölmiðlar verði gefnir út án nokkurra tengsla við stjórnmálaflokka, einstakar stjórnmálastefnur, viðskiptablokkir eða auðmenn. Enginn einn hluthafi mun fara með meira en sem nemur þriggja milljóna króna hlutafé.“

Þá kemur fram að undirbúningshópurinn hefur unnið að tilboðsgerð um nokkurt skeið, ásamt VBS fjárfestingarbanka. Hópur fólks fór í gegnum margvísleg gögn um rekstur félagsins og hefur sett saman viðskiptaáætlun til næstu ára.

„Hópurinn vill þakka VBS fjárfestingarbanka kærlega fyrir gott samstarf um tilboðsgerðina. Einnig vill hópurinn koma á framfæri þakklæti til þeirra hundruða einstaklinga, alls staðar að úr þjóðfélaginu, sem lagt hefur lóð sín á vogarskálar framtaksins,“ segir í tilkynningunni.