Innbrotið á vef Vodafone á laugardaginn virðist ekki ætla að hafa langvarandi áhrif á stöðu fyrirtækisins á markaði. Viðskipti með bréf félagsins í dag hafa numið 90 milljónum króna en bréfin hafa ekki fallið í verði.

Eins og svo oft áður er mest veltan í dag með bréf í Icelandair, en hún nemur 288 milljónum króna og lækkaði gengi bréfanna um 0,16% Næstmest veltan var með bréf í Tryggingamiðstöðinni eða 154 milljónir króna. Gengi bréfa í TM hækkaði um 0,16%.

Gengi bréfa í Vodafone lækkaði um 12% í gær en velta með bréf félagsins nam 211 milljónum króna.