Róbert Marshall hefur verið ráðinn til þriggja mánaða í stöðu upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar, en verður verður með aðsetur í forsætisráðuneytinu og hefur störf 1. apríl næstkomandi.

Róbert er fyrrverandi alþingismaður fyrir Samfylkinguna á árunum 2009 til 2013, en hefur starfað við fjallaleiðsögn, þjálfun og útivist undanfarin ár. Hann starfaði við fjölmiðla um árabil og var aðstoðarmaður samgönguráðherra áður en hann settist á þing árið 2009. Róbert er fyrrverandi formaður Blaðamannafélags Íslands og var um tíma forstöðumaður fréttasviðs 365.

Hann stundaði fiskvinnslu, netagerð og sjómennsku í Vestmannaeyjum og er stúdent frá framhaldsskólanum þar. Á þingi gegndi hann m.a. þingflokksformennsku, formennsku í allsherjarnefnd, formennsku í Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og sat í umhverfis- og samgöngunefnd, Þingvallanefnd og Norðurlandaráði.