Actavis hefur gert samning við Aceway Ltd., sem er í eigu Róbert Wessman forstjóra Actavis, um sölurétt hlutabréfanna á hendur Actavis Group, skilyrtan því að Róbert verði í starfi hjá félaginu þann 1. ágúst 2008.

Með tilkynningu þann 9. janúar 2006 tilkynnti Actavis Group, að Aceway Ltd., félag í eigu forstjóra félagsins, Róberts Wessman, hafi keypt bréf í félaginu og gert framvirkan samning við Straum Burðarás á 64.814.815 hlutum, á genginu 54 með lokadag í júlí 2006 og að félagið færi með atkvæðisrétt bréfanna.

Söluréttur bréfanna er á genginu 74,824 krónur á hlut auk fjármagnskostnaðar vegna kaupanna.

Verði Róbert ekki í starfi hjá félaginu tólf mánuði frá dagsetningu samningsins hefur Actavis Group hf. kauprétt á sömu hlutum á framangreindu verði en eftir 12 mánuði frá dagsetningu samnings og til 1. ágúst 2008 nær kaupréttur félagsins til 50% af hlutunum, enda hafi uppgjör á lánum vegna kaupanna ekki átt sér stað og allar skuldbindingar Actavis Group í tengslum við kaupin fallnar brott.

Heildareign Róberts eftir viðskiptin er óbreytt eða 136.732.633 hlutir og hefur hann ekki kauprétt að neinum hlutum í félaginu.

Gengi Actavis á markaði er 68,60 og hafa hafa hækkað um 1,93% það sem af er degi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.