Dennis Rodman, fyrrverandi leikmaður í NBA deildinni, söng afmælissönginn fyrir Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, í dag. Þar er Rodman í heimsókn, ásamt hópi af fyrrverandi NBA leikmönnum, til þess að spila körfuboltaleik við landslið Norður-Kóreumanna. Leikurinn er haldinn í tilefni af afmæli einræðisherrans.

Fjórtán þúsund manns voru staddir í íþróttahöllinni í Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu, þegar Rodman hóf upp raust sína. Rodman hlaut mikið klapp að launum.