Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst nokkuð saman á milli vikna í vikunni .

Þannig nam veltan í vikunni 1.465 milljónum króna samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands, samanborið við 2.080 milljónir króna veltu í síðustu viku og dróst því saman um 32% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta dróst við þetta nokkuð saman og hefur nú ekki verið lægri frá því um miðjan júlí. Þannig nam fjögurra vikna meðalvelta í lok vikunnar 1.596 milljónum króna og hefur þannig lækkað um 170 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur lækkað um 21% á milli ára, en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta aukist um 92% á milli ára. Á sama tíma í fyrra voru þó miklar og óvenjulegar sviptingar á markaði þegar vikuveltan fór yfir 5 milljarða króna.

Tólf vikna meðalvelta dróst saman um 70 milljónir króna í vikunni og nemur nú 1.986 milljónum króna. Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.596 milljónir króna á viku og hefur aukist um 29% á milli ára.

Í síðustu viku:

Alls var 62 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 70 samninga í vikunni á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 55 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning lækkaði nokkuð á milli vikna í síðustu viku og nam 23,6 milljónum króna, samanborið við 29,7 milljónum króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 28,2 milljónum króna og hefur því lækkað nokkuð.

Meðaltal síðustu 12 vikna er 27,3 milljónir króna.