Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,6% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:40 í 4.202 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins eitt félag, Bakkavör [ BAKK ] hefur hækkað það sem af er degi.

Velta með hlutabréf er lítil eða aðeins 145 milljónir. Þar af eru rúmar 65 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], tæpar 35 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] og um 30 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ] en talsvert minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan stendur nánast í stað frá því í morgun og er gengisvísitalan nú 158,5 stig.