Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu á milli jóla og nýárs var frekar lítil. Þannig nam veltan í vikunni 756 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands en í vikunni þar á undan nam veltan 1.506 milljónum

Velta á fasteignamarkaði hefur verið með undarlegu móti síðustu vikurnar fyrir jól. Þannig fór veltan á einni viku um og yfir 5 milljarða tvisvar á síðustu sex vikum ársins og í bæði skiptin nam meðalverð rétt rúmum 100 milljónum króna á hvern samning sem verður að teljast heldur óvenjulegt. Meðalvelta á viku var þó um 1.360 milljónir króna á árinu 2009.

Fyrir vikið hefur fjögurra vikna meðalvelta farið nokkuð úr föstum skorðum miðað við það sem á undan er gengið. Fjögurra vikna meðalvelta nemur nú 2.276 milljónum króna en var í síðustu viku 2.456 milljónir króna og lækkar því um 215 milljónir króna á milli vikna sem er töluverð sveifla. Fjögurra vikna náði þó hámarki, 3.342 milljónum króna um miðjan desember og hafði þá ekki verið hærri síðan í mars 2008.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú hækkað um 217% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 80% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta lækkar á milli vikna eða um 67 milljónir króna. Þannig nemur 12 vikna meðalvelta eftir síðustu viku ársins 1.982 milljónum króna en um miðjan desember hafði 12 vikna meðalvelta ekki verið hærri í 12 mánuði þegar hún nam 2.055 milljónum króna.

Tólf vikna meðalvelta hefur nú aukist um 60% á milli ára en á sama tíma í fyrra hafði 12 vikna meðalvelta dregist saman um 77% á milli ára.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er nú 1.358 milljónir króna og hækkar um 9 milljónir á milli vikna. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 2.116 milljónum króna og hefur því dregist saman um 36% á milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 26 kaupsamningum þinglýst í vikunni á milli jóla og nýárs, samanborið við 57 samninga í vikunni áður. Það er nokkuð undir meðaltali en að alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári.

Meðalupphæð á hvern samning í vikunni var 29,1 milljón króna, samanborið við 26,4 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna.