Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst nokkuð saman í vikunni, eða um 27% milli vikna en hafði í vikunni á undan aukist um 5% á milli vikna.

Þannig nam veltan í vikunni 1.195 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands en í vikunni á undan nam veltan 1.168 milljónum króna og hafði þá ekki verið meiri á einni viku frá því í byrjun maí.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkar þó milli vikna, fjórðu vikuna í röð. Þannig nemur fjögurra vikna meðalvelta nú 1.492 milljónum króna. Mest hefur fjögurra vikna meðalvelta verið tæpir 1,6 milljarðar á þessu ári en það var um miðjan maí.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað um 28% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 69% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta hækkar enn á milli vikna, tíundu vikuna í röð, nú um 20 milljónir króna, og nemur 1.270 milljónum króna. Tólf vikna meðalvelta hefur þó dregist saman um 44% milli ára en hafði á sama tíma í fyrra dregist saman um 65% milli ára.

Ársbreyting á vikuveltu hefur dregist saman 31%. Rétt er þó að hafa í huga að velta á fasteignamarkaði getur sveiflast nokkuð milli vikna og því er réttara að skoða fleiri vikur saman líkt og gert er hér að ofan.

Til gamans má þó skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er í dag 1.163 milljónir króna, og hefur lækkað jafnt og þétt s.l. 25 vikur, samanborið við 2.897 milljónir króna á sama tíma í fyrra og hefur því lækkað um 60% milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 40 kaupsamningum þinglýst í vikunni sem er nokkuð minna en í síðustu viku þegar 53 samningum var þinglýst. Alls hefur 37 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning hækkar lítillega milli vikna og nemur nú 29,9 milljónum króna, samanborið við 30,9 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 32,2 milljónir króna.