Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst saman á milli vikna í síðustu viku, líkt og í vikunni áður, en rétt er að geta þess að í vikunni þar á undan var veltan óvenju mikil þar sem meðalupphæð á hvern samning var nokkuð yfir meðallagi.

Þannig nam velta í síðustu viku 1.117 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 1.390 milljóna króna veltu í vikunni á undan og dróst því saman um 20% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkar þó á milli vikna, sjöttu vikuna í röð, og nemur nú 1.453 milljónum króna, samanborið við 1.406 milljónir í vikunni á undan. Þá hefur fjögurra vikna meðalvelta hækkað um tæpar 440 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú hækkað um 41% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 70% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta lækkar þó á milli vikna, eða um rúmar 30 milljónir króna, og nemur 1.579 milljónum króna. Tólf vikna meðalvelta hefur nú ekki verið lægri frá því um miðjan nóvember sl. en um miðjan desember hafði 12 vikna meðalvelta ekki verið hærri í 12 mánuði þegar hún nam 2.055 milljónum króna.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er nú 1.403 milljónir króna. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 1.795 milljónum króna og hefur því dregist saman um 22% á milli ára. Þá má geta þess að um miðjan janúar í fyrra fór 12 mánaða meðalvelta í fyrsta skipti undir 2 milljarða frá því febrúar 2003.

Í síðustu viku:

Alls var 45 kaupsamningum þinglýst í síðustu viku, samanborið við 45 samninga í vikunni þar á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári og 40 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning hækkaði á milli vikna í síðustu viku. Meðalupphæð samninga í síðustu viku var 24,8 milljónir króna, samanborið við 24,4 milljónir króna í vikunni á undan sem er lítillega undir meðaltali. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 31,4 milljónum króna.