Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu var ekki mikil í liðinni viku og nam 727 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands en í vikunni á undan nam veltan 1.198 milljónum króna.

Fjögurra vikna meðalvelta er nú að ná jafnvægi eftir að hafa hækkað verulega síðustu vikurnar fyrir jól en veltan á einni viku fór um og yfir 5 milljarða tvisvar á síðustu sex vikum ársins og í bæði skiptin nam meðalverð rétt rúmum 100 milljónum króna á hvern samning sem verður að teljast heldur óvenjulegt. Meðalvelta á viku var um 1.360 milljónir króna á árinu 2009.

Fjögurra vikna meðalvelta nemur nú 1.047 milljónum króna en var í síðustu viku 2.016 milljónir króna og lækkar því um tæpan milljarð á milli vikna. Fjögurra vikna náði hámarki, 3.342 milljónum króna um miðjan desember og hafði þá ekki verið hærri síðan í mars 2008.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú hækkað um 63% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 75% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta lækkar á milli vikna eða um 39 milljónir króna. Þannig nemur 12 vikna meðalvelta nú  1.906 milljónum króna en um miðjan desember hafði 12 vikna meðalvelta ekki verið hærri í 12 mánuði þegar hún nam 2.055 milljónum króna.

Tólf vikna meðalvelta hefur nú aukist um 86% á milli ára en á sama tíma í fyrra hafði 12 vikna meðalvelta dregist saman um 78% á milli ára.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er nú 1.366 milljónir króna og hækkar um 3 milljónir á milli vikna. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 2.036 milljónum króna og hefur því dregist saman um 33% á milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 31 kaupsamningi þinglýst í vikunni, samanborið við 36 samninga í vikunni áður. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári.

Meðalupphæð á hvern samning í vikunni var 23,5 milljónir króna, samanborið við 33,3 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna.