Rólegt var yfir hlutabréfamörkuðum í Asíu í nótt og reiknað er með að svipað verði upp á teningnum þegar þeir evrópsku opna nú í morgunsárið. Nikkei stóð nánast í stað og sama gilti um ASX í Ástralíu og Hang Seng var einnig við núllið klukkatíma fyrir lokun þar. Aftur á móti tók vísitalan í Sjanghæ stökk upp á við eða sem nam 1,28% en hún hafði lækkað umtalsvert bæði í gær og á miðvikudaginn.