Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0.50% í dag og endaði í 1,837 stigum. Markaðurinn hefur hækkað um 40.13% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Össurar um 5.43% í 300 milljón króna viðskiptum. Gengi bréfa Símans hækkaði um 0.27% í viðskiptum sem hljóðuðu upp á rúmlega 55 milljón krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair um 0.87% í 340 milljón króna viðskiptum. Þar á eftir situr TM, en gengi bréfa fyrirtækisins lækkaði um 3.19% í viðskiptum upp á litlar 80 milljónir króna. Reitir lækkuðu einnig um 1.22%, en þó aðeins í 23 milljón króna viðskiptum.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var 681 milljón krónur. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 2,95 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,4% í dag í 0,7 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði lítillega í dag í 3 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 0,2 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 2,8 milljarða króna viðskiptum.