Viðskipti með bréf í Kauphöllinni námu rétt rúmum milljarði króna í dag. Mest voru viðskiptin með bréf í HB Granda, 214,6 milljónir króna. Viðskipti með bréf VÍS námu 152 milljónum króna og 151 milljón með bréf í Eimskip.

Bréf í HB Granda hækkuðu einnig mest í viðskiptum dagsins, um 2,5%. Bréf í N1 hækkuðu um 1,3% og um 0,7% í Vodafone og 0,4% í Regin.

Bréf í Össuri lækkuðu um 2,47% og um 1,3% í Eimskipafélaginu. Bréf í Icelandair lækkuðu um 0,5% og í VÍS lækkuðu bréf um 0,34%.

Úrvalsvísitalan hækkaði örlítið, um 0,09% og stór í 1.236,32 í lok dags.