Rólegt var í Kauphöllinni í dag en heildarveltan á Aðalmarkaðnum nam 647 milljónum króna. Hlutabréfavísitalan stóð í stað.

Fjögur félög lækkuðu á markaði í dag og voru það Icelandair, Reginn, Sjóvá og Síminn. Icelandair lækkaði mest eða um 0,5% í 4 milljóna króna viðskiptum.

Sex félög hækkuðu í Kauphöllinni í dag og hækkaði Arion mest eða um 0,92% í 21 milljóna króna viðskiptum í dag. Hagar hækkuðu næstmest eða um 0,54% í 23 milljóna króna viðskiptum.