Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,14% í dag og endaði í 1.205,90 stigum. Gengi bréfa HB Granda hækkaði um 1,01%, Vodafone um 0,72% og Haga um 0,48%. Hins vegar lækkaði gengi N1 um 0,52% og Eimskips um 0,45%.

Velta á hlutabréfamarkaði nam í dag 221,9 milljónum króna og var mest velta með bréf Vodafone, eða 70,2 milljónir króna.

Velta á skuldabréfamarkaði nam 2,3 milljörðum króna í dag.