Viðskipti með hlutabréf í kauphöllinni námu 703 milljónum króna í dag. Mest voru viðskiptin með bréf í Icelandair, fyrir 133,8 milljónir króna. Bréf flugfélagsins hækkuðu um 0,71%. Aðeins bréf í Marel hækkuðu meira, eða um 0,73%. Mest lækkun var í bréfum Granda, 0,58% og TM, 0,57%.

Viðskipti með skuldabréf námu rúmum 1,5 milljarði króna, lang mest í óverðtryggðum skuldabréfum.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,26% og stóð í 1.309,18 í lok dags.