Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,28% í dag og endaði í 1,833 stigum. Markaðurinn hefur hækkað um 39,83% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa VÍS um 0,66% í 373 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa TM hækkaði um 0,65% í viðskiptum sem hljóðuðu upp á rúmlega 91 milljón króna. Auk þess hækkaði gengi bréfa N1 um 1,16% í 166 milljón króna viðskiptum. Gengi bréfa fasteignafélagsins Regins stóð í stað þrátt fyrir 116 milljóna króna viðskipti.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair um 0,43% í 807 milljón króna viðskiptum. Þar á eftir koma Reitir, en gengi bréfa fyrirtækisins lækkaði um 1,65% í viðskiptum upp á 152 milljónir króna. Gengi bréfa Eikar fasteignarfélags lækkaði einnig um 1,79% í 113 milljón króna viðskiptum.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmir 2,12 milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 19,79 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,3% í dag í 1,8 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 18 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 3,1 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% í 14,9 milljarða viðskiptum.