Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,59% í dag og endaði í 1,804 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 4,05% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Regins, eða um 0,49% í aðeins 25 milljóna króna viðskiptum, en verð á hvert bréf er þá 20,7 krónur. Gengi bréfa Sjóvár hækkaði þá einnig, eða um 0,09% í 47 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 11,70 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa HB Granda um 3,70% í 412 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut HB Granda er þá 37,75 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,72% í 647 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 34,55 krónur. Einnig lækkaði gengi N1 um 0,94% í aðeins 23 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 47,35 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæpir 1,4 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 1,5 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,5% í dag í 1,5 ma. viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði lítillega í dag í 1 ma. viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 0 ma. viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 1 ma. viðskiptum.