Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,05% í dag og endaði í 1,787 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 4,96% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Símans, eða um 1,43% í viðskiptum sem hljóða upp á 135 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 3,55 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair, eða um 0,29% í 420 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Icelandair nemur þá 34,55 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa TM um 0,66% í 172 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut TM er þá 22,75 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa HB Granda um 1,07% í 77 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 37,05 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 4,5 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði lítillega í dag í 1,1 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði lítillega í dag í 4,1 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 1,7 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 2,4 milljarða viðskiptum.