Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,32% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.881,09 stigum. Gengi bréfa Símans hækkaði um 1,43% og N1 um 0,48%. Þá lækkaði gengi bréfa VÍS um 1,36% og Regins um 0,69%. Gengi bréfa Nýherja lækkaði um 2,31% í litlum viðskiptum. Velta á hlutabréfamarkaði í dag nam 1.205,4 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,06% í dag í 0,8 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,08% og óverðtryggði hluti hennar hækkaði um 0,02%.