Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,33% í viðskiptum dagsins og stendur hún nú í 1.789,8 stigum eftir 817 milljóna viðskipti.

Gengi bréfa Skeljungs lækkaðu um 0,98% og Eimskips um 0,79% en mjög lítil velta var með bréf þessara félaga.

Gengi bréfa TM hækkaði um 1,59% í litlum viðskiptum og VÍS um 0,5% í tæplega 40 milljóna viðskiptum.

Mest velta var í viðskiptum með bréf Haga sem lækkuðu um 1,29% í 421 milljóna króna viðskiptum.

Vísitölur Gamma

Skuldabréfavísitala Gamma hækkaði um 0,2% í 2,1 milljarða viðskiptum. Þar hækkaði verðtryggði hluti vísitölunnar um 0,28% meðan sá óverðtryggði stóð í stað.