5 félög lækkuðu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag, þó öll um undir 1%, og aðeins eitt þeirra í yfir 5 milljón króna viðskiptum; viðskipti með bréf Marel námu 22 milljónum.

5 félög hækkuðu, VÍS mest um 1,2% í 9 milljón króna viðskiptum, en mest velta var með bréf Icelandair, sem hækkaði um rúmt prósent í 188 milljón króna viðskiptum, en forstjóri og stjórnarmaður félagsins keyptu bréf fyrir samtals rúmar 5 og hálfa milljón króna. Þá hækkaði Sjóvá einnig um rúmt prósent í 65 milljón króna viðskiptum.