Gengi hlutabréfa Marel hækkaði um 1,28% á tiltölulega rólegum degi í Kauphöllinni. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa fasteignafélagsins Regins um 0,66% og Haga-samstæðunnar um 0,19%.

Á móti lækkaði gengi hlutabréfa Vodafone um 0,58%, Eimskips um0,36% og Icelandair Group um 0,25%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,33% og endaði hún í 1.235,76 stigum. Heildarvelta með viðskipti í Kauphöllinni nam 664,7 milljónum króna og voru viðskiptin aðeins 37 talsins.