Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,10% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.179,20 stigum. Gengi bréfa VÍS hækkaði um 0,57%, Regins um 0,55% og TM um 0,54%. Gengi bréfa Eimskips lækkaði um 0,72% og Marels um 0,22%. Velta á hlutabréfamarkaði í dag nam tæpum 384 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,08% en annan daginn í röð var velta með minnsta móti. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,07% og sá óverðtryggði um 0,10%. Velta í viðskiptum með skuldabréf í vísitölunni nam tæpum 1,2 milljarði króna.