Þingmaðurinn Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur sagt sig úr þingflokki Vinstri hreyfingar - græns framboðs. Rósa Björk tilkynnti Katrínu Jakobsdóttur um ákvörðun sína á fundi í dag. Þetta tilkynnir Rósa Björk í bréfi sem sent var út á fjölmiðla.

„Nýlegir atburðir er varða brottvísun stjórnvalda á barnafjölskyldu sem hefur beðið eftir lausn sinna mála í 25 mánuði og viðbrögð ríkisstjórnar sem VG er í forystu fyrir í því máli, urðu til þess að ég finn endanlega að ég á ekki lengur samleið með þingflokki VG,“ segir í bréfi Rósu, um ástæðu þess að hún ákvað að segja sig úr VG. Er hún annar þingmaðurinn sem segir sig úr VG á yfirstandandi kjörtímabili.

Í lok nóvember á síðasta ári tilkynnti Andrés Ingi Jónsson að hann hefði sagt sig úr þingflokki Vinstri grænna, en hann og Rósa Björk hafa áður lýst því yfir að þau styðji ekki stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Hefur Andrés setið sem óháður þingmaður síðan þá og bætist Rósa Björk nú í hópinn.

Við upphaf ríkisstjórnarsamstarfsins, sem hófst í lok nóvember árið 2017, hafði ríkisstjórnin á að skipa 36 þingmönnum en í dag er stjórnin með 34 af 63 þingmönnum á sínum snærum.

Bréf Rósu Bjarkar má sjá í heild hér að neðan:

Ég hef átt fund í dag með Katrínu Jakobsdóttur, formanni VG, og tilkynnt henni um úrsögn mína úr þingflokki Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs og úr hreyfingunni.

Nýlegir atburðir er varða brottvísun stjórnvalda á barnafjölskyldu sem hefur beðið eftir lausn sinna mála í 25 mánuði og viðbrögð ríkisstjórnar sem VG er í forystu fyrir í því máli, urðu til þess að ég finn endanlega að ég á ekki lengur samleið með þingflokki VG.

Þetta er alls ekki auðveld ákvörðun, sér í lagi gagnvart kjósendum VG og félögum VG í Suðvesturkjördæmi. Ég þakka þeim kærlega fyrir stuðninginn, traustið og samfylgdina síðastliðin ár og vonast eftir því að þau sýni ákvörðun minni skilning.

Ég mun þrátt fyrir þetta halda áfram að vinna af krafti og einurð að góðum málum á Alþingi, sérstaklega er varða mannréttindi, umhverfis- og loftslagsmál, kynjajafnrétti og fleiri góðum málum.

Þetta mál er samt þess eðlis að það er ekki hægt annað en að taka afstöðu með mannúðinni, með réttindum barna á flótta sem hér hafa fest rætur og myndað tengsl. Og taka afstöðu gegn því að íslensk yfirvöld vísi á brott börnum og barnafjölskyldum. Á þeim þremur árum sem VG hefur setið í ríkisstjórn hefur lítið sem ekkert miðað í átt að móta hér nýja stefnu í málefnum innflytjenda og hælisleitenda eða að fylgja mannúðarsjónarmiðum í málaflokknum, sem er þó það sem ríkisstjórnin lofaði. Það er mjög miður.

Sem varaformaður flóttamannanefndar Evrópuráðsþingsins hef ég fengist mikið við málefni fólks á flótta og sérstaklega mála sem varða barna á flótta sem ég hef unnið ötullega að. Í því ljósi finnst mér þessi stefnubreyting og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar sérstaklega dapurleg og bera vitni um afstöðu sem er langt frá því sem afstaða VG í þessum málaflokki hefur verið hingað til og langt frá því sem við bárum fram bæði í stjórnarandstöðu og fyrir kosningar.

Ég óska fyrrum félögum mínum í VG góðs gengis.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir.