Rósbjörg Jónsdóttir er orðin meðeigandi og ráðgjafi hjá Gekon.

Hún var markaðsstjóri Hótel Holts árin 2005 til 2010 og þar áður starfaði hún hjá Hótel Eddu, Ferðamálaráði og Samvinnuferðum.

Rósbjörg var stundakennari við Háskóla Íslands frá árinu 2007 til 2010 en hún er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands.

Gekon er alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfir sig í að bæta samkeppnishæfni einstaklinga, fyrirtækja og samfélaga.