Royal Unibrew áformar að loka Ceres-verksmiðjunni í Árósum, einni af þremur verksmiðjum sínum í Danmörku, á fjórða ársfjórðungi til þess að draga úr kostnaði og auka verðmæti hluthafa.

Verksmiðjan, sem stendur á lóð í miðborg Árósa, verður seld. Áætlar félagið að söluhagnaður af lóðinni nemi 600-900 milljónum danskra króna fyrir skatta. FL Group er stærsti hluthafinn í Royal Unibrew með 25,5% hlut. Greint var frá þessu í Hálffimm fréttum Kaupþings.