Rúbluhraðbanki Landsbankans , sem staðsettur er í Smáralind, hefur notið meiri vinsælda en bankann hafði órað fyrir. Svo vinsæll hefur hann verið að búið er að tæma hann tvisvar. Þetta kemur fram í frétt á vef bankans .

Í gærkvöldi tæmdist hraðbankinn í annað sinn. Að sögn bankans er ný sending af rúblum á leiðinni og að það verði hægt að taka rúblur út úr hraðbankanum á nýjan leik í kvöld.

Á morgun hefst Heimsmeistaramótið í knattspyrnu í Rússlandi. Búist er við að nokkur þúsund Íslendingar geri sér ferð til Rússlands til að styðja íslenska liðið. Stuðningsmennirnir sem eru á leið til Rússlands hafa því greinilega verið duglegir að nýta sér rúbluhraðbankann.

Fyrsti leikur Íslands fer fram á laugardaginn, en þá mætir íslenska liðið Lionel Messi og félögum hans í argentíska landsliðinu.