Árið 2013 fengu 8.042 heimili fjárhagsaðstoð sveitarfélaga og hafði heimilum sem þáðu slíkar greiðslur fjölgað um 306, eða 4%, frá árinu áður. Árið 2012 fjölgaði heimilum hins vegar aðeins um 21, eða 0,3%, milli ára en hafði fjölgað að jafnaði um 860 árin áður. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands .

Af þeim heimilum sem fengu fjárhagsaðstoð árið 2013 voru einstæðir barnlausir karlar (45,5% heimila) og einstæðar konur með börn (26% heimila) fjölmennustu hóparnir. Árið 2013 voru tæplega 45% viðtakenda fjárhagsaðstoðar atvinnulausir og af þeim tæplega tveir þriðju án bótaréttar, alls 2.413 einstaklingar.

Á heimilum sem fengu fjárhagsaðstoð árið 2013 bjuggu 13.130 einstaklingar eða 4,0% þjóðarinnar, þar af voru 4.421 barn eða 5,5% barna á þeim aldri. Árið 2012 bjuggu 12.586 einstaklingar eða 3,9% þjóðarinnar á slíkum heimilum, þar af voru 4.190 börn eða 5,3% barna.