26 börnum og fjölskyldum þeirra, samtals rúmlega 150 manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair á laugardaginn, fyrsta vetrardag. Alls bárust sjóðnum um 300 umsóknir að þessu sinni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair en markmið sjóðsins Vildarbörn er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á. Alls hafa 355 fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans. Þetta er 19. úthlutun sjóðsins og 10. starfsár hans.

Í tilkynningunni kemur fram að sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Saga Club Icelandair sem geta gefið af Vildarpunktum sínum, með söfnun myntar um borð í flugvélum Icelandair, sölu á Vildarenglinum um borð í vélum Icelandair og söfnunarbaukum á Keflavíkurflugvelli og söluskrifstofu Icelandair.

Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Að meðaltali eru fimm manns í hverri fjölskyldu og því hafa um 1770 einstaklingar farið í ferð á vegum sjóðsins. Jafnan hafa margar fjölskyldanna valið að fara til Flórída og heimsækja Disneyland og aðra skemmtigarða þar.

Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og nú stjórnarformaður Icelandair Group. Peggy er nú í stjórn Vildarbarna Icelandair. Verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, en Sigurður Helgason er formaður stjórnar hans.