Þann 1. mars 2016 höfðu verið gefnir út 195.196 Íslyklar til einstaklinga og 6.398 til fyrirtækja. Þetta er töluverð fjölgun frá miðjum október 2014, en þá höfðu verið gefnir út 136.340 Íslyklar til einstaklinga og 2.783 til fyrirtækja.

Íslykill er gefinn út af Þjóðskrá Íslands en hann er lykilorð sem er tengt kennitölu einstaklings eða lögaðila.