Ferðamenn
Ferðamenn
Það sem af er ári hafa 304.643 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða um 50 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. Aukningin nemur 19,6% milli ára. Aukning hefur verið milli ára frá öllum mörkuðum en Norður-Ameríkanar hafa þó borið uppi aukningu ársins en þeim hefur fjölgað um 51,2% frá því í fyrra. Norðurlandabúum hefur fjölgað um 17,7%, Mið- og S-Evrópubúum um 15,2%, Bretum um 8,8% og ferðamönnum frá öðrum löndum um 14%. Þetta kemur fram á vef Ferðamálastofu.