Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir apríl 2008 nam útflutningur 33,5 milljörðum króna og innflutningur tæpum 40,8 milljörðum króna.
Vöruskiptin í apríl voru því óhagstæð um 7,2 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.
Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.