Sala á nýjum fólksbílum í marsmánuði jókst um 81,9% frá sama tímabili á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bílgreinasambandinu.

Í mars voru 977 bílar nýskráðir á móti 537 bílum í sama mánuði árið 2014. Þar af voru 456 bílaleigubílar eða næstum helmingur af heildarnýskráningum fólksbíla í mánuðinum.

„Sú jákvæða þróun er fór af stað á síðasta ári heldur áfram og er jafn stígandi í sölu nýrra bíla. Aukning er bæði í nýskráningum bíla til einstaklinga sem og bílaleigna samfara auknum ferðamanna straumi. Er það von Bílgreinasambandsins að þessi þróun haldi áfram svo fækka megi mengandi og óöruggum bílum í umferðinni. Þónokkuð er samt enn í land en Ísland er með einn elsta bílaflota í Evrópu með meðalaldur upp á 12 ár. Í Evrópu er meðalaldur fólksbíla 8,4 ár,“ segir Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins.