Um 60% þeirra sem tóku þátt í alþjóðlegri rannsókn Global Corruption Barometer 2010 telja að spilling hafi aukist verulega í heiminum á undanförnum þremur árum. Einn hverjum fjórum á heimsvísu segist hafa greitt mútur á síðastliðnu ári.

Þetta kemur fram í fréttatilkynnignu frá Capacent.

„Capacent sá um framkvæmd rannsóknarinnar á Íslandi fyrir hönd Transparency International.

Þegar íslensku niðurstöðurnar eru skoðaðar kemur í ljós að 53% Íslendinga telja spillingu hafa aukist, 32% telja hana hafa staðið í stað og að mati 15% hefur dregið úr spillingu.

Þátttakendur voru m.a. beðnir um að meta hversu mikil spilling viðgengist innan mismunandi þjóðfélagstofnana þar sem einkunnin 1 merkti að viðkomandi stofnun væri óspillt og einkunnin 5 að hún væri gjörspillt.

Stjórnmálaflokkar á Íslandi fengu einkunnina 4,3, Alþingi 3,7, lögreglan 2,2, viðskiptalífið, 4,0, fjölmiðlar 3,5, embættismenn 3,5, dómskerfið 2,7, almenn samtök 2,6, trúfélög 3,2 og menntakerfið fékk einkunnina 2,4.

Rannsókn Global Corruption Barometer nær til 86 ríkja um allan heim og tóku 91.500 þátt í rannsókninni. Þetta er eina hnattræna rannsóknin sem gerð er á spillingu í heiminum.

Niðurstöðurnar voru neikvæðastar á Vesturlöndum. Í Vestur-Evrópu segjast 73% telja að spilling hafi aukist og 67% í Norður-Ameríku.

„Viðhorf til spillingar eru enn undir áhrifum af eftirköstum fjármálakreppunnar, ekki síst í Norður-Ameríku og Vestur-Evrópu. Stofnanir verða að vera staðfastar í viðleitni sinni til að koma á góðum stjórnarháttum og byggja upp traust,” segir Huguete Label, formaður Transparency International.

Flestir þeirra sem segjast hafa greitt mútur segja að þær hafi verið greiddar lögreglu. Um 30% þeirra sem hafa átt samskipti við lögreglu í heiminum segjast hafa greitt mútur. Veruleg aukning hefur orðið á „smávægilegum“ mútum í 20 ríkjum. Mest er aukningin í Chile, Kólumbíu, Kenýa, Makedóníu, Nígeríu, Póllandi, Rússlandi, Senegal og á Taílandi. Annar hver maður í sunannverðri Afríku segist hafa greitt mútur á síðastliðnum 12 mánuðum og er hlutfallið hvergi hærra í heiminum.

Ein af meginniðurstöðunum á heimsvísu er að fáir treysta stjórnvöldum og stjórnmálamönnum. Átta af hverjum tíu segja að stjórnmálaflokkar séu spilltir eða gjörspilltir og um helmingur segir tilraunir stjórnvalda til að berjast gegn spillingu ekki skila árangri.

Hægt er að skoða niðurstöður rannsóknarinnar á vef Transparency International: www.transparency.org,“ segir í tilkynningu frá Capacent.