Rúmlega helmingur fjölskyldna hefur lága greiðslubyrði, eða undir 10% af ráðstöfunartekjum. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar .

Í þeim hópi eru meðal annars þeir sem eiga skuldlausa fasteign og þeir sem eiga ekki fasteign. Um 60% fjölskyldna með greiðslubyrði undir 10% af ráðstöfunartekjum eiga ekki fasteign. Fjölskyldum með lága greiðslubyrði fjölgaði hlutfallslega á tímabilinu 2015–2018. Tæplega 7% fjölskyldna voru með greiðslubyrði af ráðstöfunartekjum yfir 60% árið 2015 og hefur farið hlutfallslega fækkandi fram til ársins 2018.

Greiðslubyrði skulda sem hlutfall af ráðstöfunartekjum er einn mælikvarði á fjárhagsstöðu fjölskyldunnar og gefur til kynna hversu vel fjölskyldan er í stakk búin til að greiða af lánum. Hafa ber í huga að einungis er um að ræða greiðslubyrði skulda og því er ekki hægt að alhæfa almennt um kjör fjölskyldna úr frá niðurstöðunum. Til að mynda getur fjölskylda á leigumarkaði skuldað lítið og þar af leiðandi haft lága greiðslubyrði vegna skulda en tekjur ekki nægt fyrir leigu og öðrum framfærslukostnaði.