© Aðsend mynd (AÐSEND)

Rúnar Bjarnason hefur verið ráðinn forstöðumaður PwC á Norðurlandi og hefur hann þegar hafið störf.

„Ég er mjög spenntur að fá tækifæri til að vinna með starfsfólki og viðskiptavinum PwC á Norðurlandi og takast á við þær áskoranir og verkefni sem þessi gamalgróna starfsemi á Norðurlandi stendur frammi fyrir,“ segir Rúnar í tilkynningu frá PwC. Skrifstofur PwC á Norðurlandi eru að Garðarsbraut 15, 640 Húsavík og Glerárgötu 30, 600 Akureyri og starfa á skrifstofum félagsins 7 starfsmenn.

Rúnar er viðskiptafræðingur með meistaragráðu frá Háskóla Íslands og löggiltur endurskoðandi. Rúnar hóf störf hjá PwC árið 2008 og hefur gegnt ýmsum störfum tengdum endurskoðun hjá félaginu og nú síðast sem löggiltur endurskoðandi. Eiginkona Rúnars er Harpa Samúelsdóttir lögfræðingur og eiga þau tvö börn.

Fram kemur í tilkynningu að PwC á Norðurlandi  þjónar svæðinu frá Hrútafirði austur á Vopnafjörð og rekur skrifstofur á Akureyri og Húsavík. PwC leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum á Norðurlandi góða og öfluga þjónustu en skrifstofan á Húsavík hóf starfsemi 1979 og fagnar því 35 ára afmæli á þessu ári.